Mér er spurn: Hvað & hvers virði eru eftirfarandi atriði þessum embættis- & stjórnaþingmönnum frá því Ísland byggðist, varð sjálfstætt frá Dönum o.m.fl.?!

,,Dæmi nú svo hver fyrir sig, er snýr að "Lögvarða bundnum Mannréttindar- & Stjórnarskráarbrotum embættis- & stjórnaþingmanna" hér á Íslandi auk annarra aðila s.s. fyrirtækja í rekstri, hvort sem þau hafa fengið & hlotið afskriftir uppá tugir hundruða þúsunda milljóna & milljarða eða þau hafa fengið að halda áfram sínum gjaldþrota lífæðlega rekstri í von & óvon um betri tíð & blóm í haga" - http://www.velferdarraduneyti.is/frettir-vel/nr/33108 - Mér er spurn: Hvað & hvers virði eru eftirfarandi atriði þessum embættis- & stjórnaþingmönnum frá því Ísland byggðist, varð sjálfstætt frá Dönum o.m.fl.?! SAMNINGUR UM RÉTTINDI FATLAÐS FÓLKS - 3. gr.
Almennar meginreglur.
Meginreglur samnings þessa eru eftirfarandi:
a) virðing fyrir meðfæddri göfgi, sjálfræði einstaklinga, þar með talið frelsi til að taka eigin
ákvarðanir, og sjálfstæði þeirra, d) virðing fyrir því sjónarmiði að fatlað fólk sé ólíkt og viðurkennt í þeim skilningi að um mannlega
fjölbreytni og mannlegt eðli sé að ræða, b) bann við mismunun, e) jöfn tækifæri, g) jafnrétti kynjanna, en hvað gerði Frú Háttvirta Jóhanna Sigurðardóttir, Forsætisráðherra núna fyrr um árið? Nú, jú hún gekk í það heilaga & hnýtti svo um hnútana að þessi þjóðfélagshópur er hún tilheyrir o.m.fl. þ.a.m. elli-, örorku- & lífeyrisþegar gætu ekki átt þess kost á að ganga í það heilaga óhindrað undir sömu formerkjum. Með öðrum orðum: Líkt & Lykla-Pétur hefði mætt á svæðið með "Allrahanda-lykilinn" bara sísvona & gengið í það heilaga & hleypt bara þessum allra mikilvægustu inn auk forvera sinna & nánustu ættingja & síðan þegar þetta hefur verið af- & yfirstaðið lokað & læst & yfirgefið vettvanginn. 4. gr.
Almennar skuldbindingar.
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og mannfrelsi
verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar.
Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
a) að samþykkja öll viðeigandi lagaákvæði og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til
þess að þau réttindi sem eru viðurkennd með samningi þessum nái fram að ganga,
b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar með talið á sviði lagasetningar, til þess að gildandi lögum,
reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða
þau afnumin, c) að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og
áætlanagerð,
d) að láta hjá líða að aðhafast nokkuð það sem fer í bága við samning þennan og sjá til þess að
opinber yfirvöld og stofnanir vinni í samræmi við ákvæði hans,
e) að gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að uppræta mismunun vegna fötlunar sem
einstaklingur, stofnun eða einkafyrirtæki gerir sig sekt um,
f) að framkvæma eða stuðla að rannsóknum og þróun á vörum, þjónustu, tækjum og aðstöðu, sem
fara saman við algilda hönnun skv. 2. gr. samnings þessa og breyta þarf sem allra minnst og með
sem minnstum tilkostnaði til þess að mæta sérþörfum fatlaðs fólks, að gera gangskör að því að
þau séu á boðstólum og notuð og að ýta undir algilda hönnun þegar móta á staðla og
leiðbeiningar,
g) að framkvæma eða stuðla að rannsóknum og þróun á nýrri tækni, og gera gangskör að því að hún
sé á boðstólum og notuð, þ.m.t. upplýsinga- og samskiptatækni, hreyfibúnaður, tæki og
hjálpargögn, sem henta fötluðu fólki, með áherslu á tækni á viðráðanlegu verði,
h) að láta fötluðu fólki í té aðgengilegar upplýsingar um hreyfibúnað, tæki og hjálpargögn, þar með
talið nýja tækni, og um annars konar aðstoð, stoðþjónustu og aðstöðu,
i) að auka þjálfun fagmanna og starfsmanna, sem vinna með fötluðu fólki, um þau réttindi sem eru
viðurkennd með samningi þessum til þess að unnt sé að betrumbæta þá aðstoð og þjónustu sem
þau réttindi tryggja.
2. Að því er varðar efnahags-, félags- og menningarleg réttindi skuldbindur sérhvert aðildarríki sig
til þess að gera ráðstafanir, eins og efni þess frekast leyfa og með þátttöku í alþjóðasamstarfi, eftir
því sem þörf krefur, í því skyni að fyrrnefnd réttindi verði í einu og öllu virk í áföngum með fyrirvara
um þær skuldbindingar samkvæmt samningi þessum sem gilda þegar í stað samkvæmt reglum
þjóðaréttar.
3. Aðildarríkin skulu, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningi þessum til
framkvæmdar og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð við og tryggja
virka þátttöku fatlaðs fólks, þ.m.t. fötluð börn, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess
hönd.
4. Ekkert í samningi þessum hefur áhrif á ákvæði sem stuðla frekar að því að réttindi fatlaðs fólks
verði að veruleika og lög aðildarríkis eða reglur þjóðaréttar, sem gilda gagnvart hlutaðeigandi
aðildarríki, kunna að innihalda.
Eigi skal takmarka eða víkja frá nokkrum mannréttindum og mannfrelsi, sem eru viðurkennd eða
gilda í aðildarríki að samningi þessum samkvæmt lögum, samningum, reglum eða venju, undir því
yfirskini að slík réttindi eða frelsi sé ekki viðurkennt eða viðurkennt í minna mæli samkvæmt
samningi þessum.
5. Ákvæði samnings þessa gilda alls staðar í sambandsríkjum án nokkurra takmarkana eða
undanþága. 5. gr.
Jafnrétti og bann við mismunun.
1. Aðildarríkin viðurkenna að allir menn eru jafnir fyrir lögunum og eiga rétt, án nokkurrar
mismununar, á jafnri vernd og jöfnum hag lögum samkvæmt.
2. Aðildarríkin skulu leggja bann við hvers kyns mismunun vegna fötlunar og tryggja fötluðu fólki
jafna og nægilega réttarvernd gegn mismunun á öllum sviðum.
3. Aðildarríkin skulu, í því skyni að stuðla að jöfnuði og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi
ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða.
4. Eigi ber að líta á sértækar ráðstafanir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram
jafnrétti til handa fötluðu fólki í reynd, sem mismunun samkvæmt skilmálum samnings þessa. 8. gr.
Vitundarvakning.
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að samþykkja tafarlausar, árangursríkar og viðeigandi
ráðstafanir:
a) til þess að vekja þjóðfélög til vitundar, m.a. fjölskylduna, um fatlað fólk og auka virðingu fyrir
réttindum þess og meðfæddri göfgi,
b) til þess að vinna á móti staðalímyndum, fordómum og skaðlegum venjum sem tengjast fötluðu
fólki, m.a. þeim sem heimfæra má til kyns og aldurs, á öllum sviðum mannlífs,
c) til þess að auka vitund um getu og framlag fatlaðs fólks.
2. Meðal ráðstafana í þessu skyni má nefna:
a) að hefja og vinna stöðugt að átaksverkefnum um vitundarvakningu hjá almenningi sem miða að
því:
i. að gera almenning móttækilegan fyrir réttindum fatlaðs fólks,
ii. að stuðla að jákvæðri ímynd fatlaðs fólks og efla vitund í samfélaginu um málefni þess,
iii. að færni, verðleiki og geta fatlaðs fólks sé viðurkennd í ríkari mæli, ennfremur framlag þess til
vinnustaða sinna og vinnumarkaðarins í heild,
b) að ýta undir það sjónarmið, á öllum skólastigum, þ.m.t. hjá börnum frá unga aldri, að virða beri
réttindi fatlaðs fólks,
c) að hvetja alla fjölmiðla til þess að gefa mynd af fötluðu fólki sem samræmist tilgangi samnings
þessa,
d) að hvetja til þess að gerðar séu áætlanir um fræðslu sem lýtur að vitundarvakningu um fatlað fólk
og réttindi þess. 10. gr.
Réttur til lífs.
Aðildarríkin árétta að sérhver mannvera eigi meðfæddan rétt til lífs og skulu gera allar
nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk fái notið þess á virkan hátt til jafns við aðra. 13. gr.
Aðgangur að réttarkerfinu.
1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki virkan aðgang að réttarkerfinu til jafns við aðra, meðal
annars með því að laga málsmeðferð alla að þörfum þess og taka tilhlýðilegt tillit til aldurs
viðkomandi, í því skyni að gera því kleift að gegna hlutverki sínu með virkum hætti sem beinir og
óbeinir þátttakendur, þar með talið sem vitni, í öllum málarekstri, einnig á rannsóknarstigi og öðrum
undirbúningsstigum.
2. Í því skyni að greiða fyrir því að tryggja megi fötluðu fólki virkan aðgang að réttarkerfinu skulu
aðildarríkin stuðla að viðeigandi fræðslu og þjálfun fyrir þá sem starfa á sviði réttarvörslu, meðal
annars lögreglumenn og starfsmenn fangelsa. - 10 -
14. gr.
Frelsi og mannhelgi.
1. Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk:
a) njóti, til jafns við aðra, réttar til frelsis og mannhelgi,
b) sé ekki svipt frelsi sínu með ólögmætum hætti eða að geðþótta og að frelsissvipting í hvaða mynd
sem er sé lögum samkvæmt og að fötlun skuli ekki undir neinum kringumstæðum réttlæta
frelsissviptingu.
2. Sé fatlað fólk svipt frelsi með einhverjum hætti skulu aðildarríkin ábyrgjast að því séu tryggð
mannréttindi til jafns við aðra í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög og það hljóti meðferð sem
samræmist markmiðum og meginreglum samnings þessa, meðal annars með því að tryggja því
viðeigandi aðlögun. 12. gr.
Réttarstaða til jafns við aðra.
1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk eigi rétt á því að vera viðurkennt hvar sem er sem aðilar að
lögum.
2. Aðildarríkin viðurkenni að fatlað fólk skuli njóta gerhæfis til jafns við aðra á öllum sviðum
mannlífs.
3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk geti leitað eftir aðstoð sem
það kann að þarfnast þegar það nýtir gerhæfi sitt.
4. Aðildarríkin skulu tryggja að allar ráðstafanir, sem varða beitingu gerhæfis, innihaldi viðeigandi
og árangursríkar verndarráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg
mannréttindalög. Fyrrnefndar verndarráðstafanir skulu tryggja að með ráðstöfunum, sem varða
beitingu gerhæfis, séu réttindi, vilji og séróskir viðkomandi einstaklings virt, slíkar ráðstafanir leiði
ekki til hagsmunaárekstra eða hafi ótilhlýðileg áhrif, þær séu við hæfi og sniðnar að aðstæðum
viðkomandi einstaklings, gildi í sem skemmstan tíma og séu endurskoðaðar reglulega af til þess
bæru, sjálfstæðu og hlutlausu yfirvaldi eða stofnun á sviði dómsmála.
Gæta ber meðalhófs við gerð verndarráðstafana að því marki sem slíkar ráðstafanir hafa áhrif á
réttindi og hagsmuni viðkomandi einstaklings.
5. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir, samkvæmt ákvæðum
þessarar greinar, til þess að tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til þess að eiga eða erfa eignir, að stýra
eigin fjármálum og hafa jafnan aðgang að bankalánum, veðlánum og annars konar fjárhagslegum
lánum, jafnframt því að tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt eignum sínum að geðþótta. 16. gr.
Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum.
1. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og
menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan, fyrir
hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum, m.a. með hliðsjón af kynbundnum
þáttum slíkra athafna.
2. Aðildarríkin skulu einnig gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í
gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er, meðal annars með því að tryggja fötluðu
fólki og fjölskyldum þess, ásamt þeim sem annast það, viðeigandi aðstoð og stuðning, sem tekur mið
af kyni og aldri, m.a. með því að veita upplýsingar og fræðslu um hvernig beri að forðast, átta sig á
og tilkynna um misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar. Aðildarríkin skulu tryggja að
félagsþjónusta taki mið af kyni, aldri og fötlun.
3. Í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd
sem er skulu aðildarríkin tryggja að óháð yfirvöld hafi virkt eftirlit með allri aðstöðu og áætlunum
sem er ætlað að þjóna fötluðu fólki. 4. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að stuðla að líkamlegum,
vitsmunalegum og sálrænum bata, endurhæfingu og félagslegri endursamlögun fatlaðs fólks, sem
verður þolendur misnotkunar í gróðaskyni, ofbeldis eða misþyrminga í einhverri mynd, meðal annars
með því að bjóða fram félagsþjónustu. Slíkur bati og endursamlögun skal fara fram í umhverfi sem
stuðlar að bættri heilsu, velferð, sjálfsvirðingu, göfgi og sjálfræði einstaklinganna, þar sem tillit er
tekið til sérþarfa þeirra miðað við kyn og aldur.
5. Aðildarríkin skulu taka upp skilvirka löggjöf og stefnu, þ.m.t. löggjöf og stefna sem tekur mið af
þörfum kvenna og barna, til þess að unnt sé að staðreyna misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og
misþyrmingar, sem beinast gegn fötluðu fólki, og ákæra vegna slíkrar háttsemi ef það á við.
17. gr.
Verndun friðhelgi einstaklingsins.
Sérhver fatlaður einstaklingur á rétt á því, til jafns við aðra, að líkamleg og andleg friðhelgi hans sé
virt.
18. gr.
Umferðarfrelsi og ríkisfang.
1. Aðildarríkin skulu viðurkenna rétt fatlaðs fólks, til jafns við aðra, til umferðafrelsis og frelsis til
að velja sér búsetu og ríkisfang, m.a. með því að ábyrgjast að fatlað fólk:
a) hafi rétt til að öðlast ríkisfang og breyta því og sé ekki svipt ríkisfangi sínu að geðþótta eða vegna
fötlunar,
b) sé ekki, vegna fötlunar, svipt hæfi sínu til að fá, hafa umráð yfir og nýta sér skjöl um ríkisfang sitt
eða önnur auðkenningarskjöl eða til að hagnýta viðeigandi verklag, t.d. málsmeðferð vegna
innflutnings fólks, sem kann að vera nauðsynlegt til þess að gera því auðveldar um vik að nýta sér
réttinn til umferðafrelsis,
c) hafi frelsi til að yfirgefa hvaða land sem er, þar með talið sitt eigið,
d) sé ekki, að geðþótta eða vegna fötlunar, svipt réttinum til að koma til síns eigin lands.
2. Fötluð börn skulu skráð þegar eftir fæðingu og eiga frá fæðingu rétt til nafngiftar, rétt til þess að
öðlast ríkisfang og, efir því sem unnt er, rétt til þess að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar
þeirra. 19. gr.
Að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu.
Ríkin, sem eru aðilar að samningi þessum, viðurkenna jafnan rétt alls fatlaðs fólks til að lifa í
samfélaginu og rétt þess til að eiga valkosti til jafns við aðra og skulu gera árangursríkar og
viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk megi njóta þessa réttar til fulls og stuðla að fullri þátttöku
þess í samfélaginu án aðgreiningar, meðal annars með því að tryggja:
a) fötluðu fólki tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við
aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima þar sem tiltekið búsetuform ríkir,
b) fötluðu fólki aðgang að margs konar samfélagsaðstoð, á borð við heimaþjónustu, vist á
dvalarheimili og annars konar aðstoð, m.a. nauðsynlegri þjónustu til að geta lifað í samfélaginu án
aðgreiningar og til að koma í veg fyrir einangrun þess og aðskilnað frá samfélaginu,
c) að samfélagsþjónusta og aðstaða fyrir almenning standi fötluðu fólki til boða til jafns við aðra og
svari þörfum þess.
20. gr.
Ferlimál einstaklinga.
Aðildarríkin skulu gera árangursríkar ráðstafanir til þess að tryggja að einstaklingum sé gert kleift
að fara allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt,
m.a. með því:
a) að greiða fyrir því að fatlað fólk geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem, og þegar, því
hentar og gegn viðráðanlegu gjaldi,
b) að greiða fyrir aðgangi fatlaðs fólks að hreyfibúnaði, tækjum, hjálpargögnum og beinni aðstoð og
þjónustu milliliða í háum gæðaflokki, meðal annars með því að hafa þau á boðstólum á
viðráðanlegu verði,
c) að bjóða fram fræðslu og þjálfun í hreyfifærni fyrir fatlað fólk og sérhæft starfslið sem vinnur með
fötluðu fólki,
d) að hvetja fyrirtæki, sem framleiða hreyfibúnað, tæki og hjálpargögn, til þess að taka mið af öllum
þáttum ferlimála fatlaðs fólks. 22. gr.
Virðing fyrir einkalífi.
1. Enginn fatlaður einstaklingur skal, án tillits til búsetustaðar eða búsetuforms, sæta því að einkalíf
hans, fjölskyldulíf, heimilislíf eða bréfaskipti eða samskipti af öðru tagi séu trufluð að geðþótta eða
með ólögmætum hætti eða að vegið sé að æru hans eða orðstír með óréttmætum hætti. Fatlað fólk á
rétt á því að lögin verndi það gegn fyrrnefndri truflun eða árásum.
2. Aðildarríkin skulu tryggja að farið sé með upplýsingar um persónulega hagi, heilsufar og
endurhæfingu fatlaðs fólks sem trúnaðarmál á sama hátt og gildir um aðra.
23. gr.
Virðing fyrir heimili og fjölskyldu.
1. Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í því skyni að uppræta mismunun
gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og
samböndum, á sama hátt og gildir um aðra, til þess að tryggja megi:
a) að réttur alls fatlaðs fólks, sem til þess hefur náð tilskildum aldri, til að ganga í hjónaband og
stofna fjölskyldu, með frjálsu og fullu samþykki hjónaefnanna, sé virtur,
b) að réttur fatlaðs fólks til óheftrar og ábyrgrar ákvarðanatöku um fjölda barna og tíma milli
fæðinga og til að hafa aðgang, þar sem tekið er tillit til aldurs, að upplýsingum og fræðslu um
getnað og fjölskylduáætlanir sé viðurkenndur og að því séu tiltæk nauðsynleg ráð sem gera því
kleift að nýta sér þennan rétt.
c) að fatlað fólk, þ.m.t. börn, fái haldið frjósemi sinni til jafns við aðra. - 14 -
2. Aðildarríkin skulu tryggja réttindi og ábyrgð fatlaðs fólks með tilliti til lögráða, forráða, fjárhalds
eða ættleiðingar barna eða svipaðrar íhlutunar, þar sem þessi hugtök eru til í landslögum, og skal
setja hagsmuni barnsins ofar öllu. Aðildarríkin skulu veita fötluðu fólki viðeigandi aðstoð við að
uppfylla skyldur sínar sem uppalendur barna.
3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum jafnan rétt með tilliti til fjölskyldulífs. Til þess að
þessi réttur verði að veruleika og í því skyni að koma í veg fyrir að fötluðum börnum sé leynt, þau
yfirgefin, vanrækt eða að þau séu þolendur aðskilnaðar skulu aðildarríkin skuldbinda sig til þess að
veita fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra snemma alhliða upplýsingar, þjónustu og stuðning.
4. Aðildarríkin skulu tryggja að barn sé ekki tekið frá foreldrum sínum gegn vilja þeirra, nema
lögbær yfirvöld ákveði, með fyrirvara um endurskoðun dómsvalds og í samræmi við gildandi lög og
málsmeðferð, að slíkur aðskilnaður sé nauðsynlegur með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Barn skal
aldrei taka frá foreldrum sínum vegna fötlunar barnsins eða annars foreldris eða beggja.
5. Aðildarríkin skulu reyna til þrautar, ef kjarnafjölskylda er ófær um að annast fatlað barn, að fá
annan aðila innan stórfjölskyldunnar til þess að annast barnið og reynist það ekki unnt þá ráðstafa því
til fjölskyldu innan samfélagsins. 24. gr.
Menntun.
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til menntunar. Þau skulu, í því skyni að þessi réttur megi
verða að veruleika án mismununar og þannig að allir hafi jöfn tækifæri, koma á menntakerfi á öllum
skólastigum án aðgreiningar og símenntun sem miða að því:
a) að auka mannlega getu til fulls og tilfinningu fyrir meðfæddri göfgi og eigin verðleikum og auka
virðingu fyrir mannréttindum, mannfrelsi og mannlegri fjölbreytni,
b) að fatlað fólk geti fullþroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og
líkamlegri getu,
c) að gera fötluðu fólki kleift að vera virkir þátttakendur í frjálsu þjóðfélagi.
2. Til þess að þessi réttur megi verða að veruleika skulu aðildarríkin tryggja:
a) að fatlað fólk sé ekki útilokað frá hinu almenna menntakerfi vegna fötlunar og að fötluð börn séu
ekki útilokuð frá gjaldfrjálsu skyldunámi á grunnskólastigi, eða námi á framhaldsskólastigi, vegna
fötlunar,
b) að fatlað fólk hafi aðgang að endurgjaldslausri grunn- og framhaldsskólamenntun, sem uppfyllir
almennar kröfur um gæði, til jafns við aðra í þeim samfélögum þar sem það býr,
c) að viðkomandi einstaklingur njóti viðeigandi aðlögunar til þess að þörfum hans sé mætt, d) að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning, innan hins almenna menntakerfis, til þess að stuðla að
haldgóðri menntun þess,
e) að árangursríkar, einstaklingsbundnar stuðningsaðgerðir séu boðnar fram í umhverfi sem ýtir hvað
mest undir framvindu í námi og félagslega þróun sem aftur samræmist því markmiði að fatlað fólk
geti lifað í samfélaginu án nokkurrar aðgreiningar.
3. Aðildarríkin skulu gera fötluðu fólki kleift að öðlast hagnýta og félagslega færni í því skyni að
greiða fyrir fullri þátttöku þess, til jafns við aðra, í skólastarfi og sem þjóðfélagsþegnar. Aðildarríkin
skulu gera viðeigandi ráðstafanir í þessu skyni, meðal annars:
a) auðvelda fötluðu fólki að læra blindraletur, óhefðbundna skrift, bættar og óhefðbundnar
samskiptaaðferðir, -leiðir og -form og færni í áttun og hreyfifærni, ásamt því að greiða fyrir
jafningjaaðstoð og handleiðslu,
b) auðvelda fötluðu fólki að læra táknmál og stuðla að samsemd heyrnarlausra með tilliti til
tungumáls,
c) tryggja að menntun einstaklinga, og þá sérstaklega barna, sem eru blindir, heyrnarlausir eða
daufblindir, fari fram á þeim tungumálum og samkvæmt og eftir þeim aðferðum og leiðum sem
henta viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem ýtir hvað mest undir framvindu í námi og
félagslegan þroska.
4. Í því skyni að tryggja að fyrrnefnd réttindi verði að veruleika skulu aðildarríkin gera viðeigandi
ráðstafanir til þess að ráða kennara, þ.m.t. fatlaða kennara, sem eru sérhæfðir í táknmáli og/eða
blindraletri, og að þjálfa fagmenn og starfsmenn sem starfa á öllum sviðum menntakerfisins.
Fyrrnefnd þjálfun skal meðal annars fela í sér vitund um fötlun og notkun bættra og óhefðbundinna
aðferða, leiða og forma í samskiptum, auk kennslutækni og kennsluefnis sem er ætlað að styðja
fatlað fólk.
5. Aðildarríkin skulu tryggja að fötluðu fólki sé gert kleift að hefja almennt nám á háskólastigi og að
það fái aðgang að starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu og símenntun án mismununar og til jafns við aðra.
Aðildarríkin skulu, í þessu skyni, tryggja að fatlað fólk fái notið viðeigandi aðlögunar. 27. gr.
Vinna og starf.
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks, til jafns við aðra, til vinnu; í því felst réttur til að fá
ráðrúm til að afla sér lífsviðurværis með vinnu að eigin vali eða vinnu sem er þegin á frjálsan hátt á
vinnumarkaði og í vinnuumhverfi sem fötluðu fólki stendur opið, er án aðgreiningar og er því
aðgengilegt. Aðildarríkin skulu tryggja og stuðla að því að rétturinn til vinnu verði að veruleika, m.a.
fyrir þá sem verða fatlaðir meðan þeir gegna starfi, með því að gera viðeigandi ráðstafanir, til að
mynda með lagasetningu, til þess meðal annars:
a) að leggja bann við mismunun vegna fötlunar að því er varðar öll mál sem tengjast störfum af
hvaða tagi sem er, m.a. nýskráningar-, ráðningar- og starfsskilyrði, starfsöryggi, starfsframa og
öryggi og hollustuhætti á vinnustað,
b) að vernda rétt fatlaðs fólks, til jafns við rétt annarra, til sanngjarnra og hagstæðra vinnuskilyrða,
m.a. jafnra tækifæra og launajafnréttis, öryggis og hollustu á vinnustað, þ.m.t. vernd gegn stöðugri
áreitni, og til þess að fá úrlausn kvörtunarmála,
c) að tryggja að fötluðu fólki sé gert kleift að nýta sér atvinnuréttindi sín og réttindi sem meðlimir
stéttarfélaga til jafns við aðra,
d) að gera fötluðu fólki kleift að hafa með virkum hætti aðgang að tækni- og starfsráðgjöf,
atvinnumiðlun og starfsþjálfun og símenntun sem almenningi stendur til boða,
e) að skapa atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk og stuðla að starfsframa þess á vinnumarkaði, ásamt því
að auka aðstoð við að finna starf, fá það, halda því og fara aftur inn á vinnumarkað,
f) að stuðla að tækifærum til að starfa sjálfstætt, stunda frumkvöðlastarfsemi, þróa samvinnufélög og
stofna eigin fyrirtæki,
g) að ráða fatlað fólk til starfa innan opinbera geirans,
h) að stuðla að því að fatlað fólk verði ráðið til starfa innan einkageirans með því að marka stefnu
við hæfi og gera viðeigandi ráðstafanir sem kunna að felast í áætlunum um sértækar aðgerðir,
hvatningu og öðrum aðgerðum,
i) að tryggja að fatlað fólk á vinnustað fái notið viðeigandi aðlögunar,
j) að stuðla að því að fatlað fólk geti aflað sér starfsreynslu á almennum vinnumarkaði,
k) að stuðla að starfstengdri og faglegri endurhæfingu fatlaðs fólks, að því að það haldi störfum
sínum og að framgangi áætlana um að það geti snúið aftur til starfa.
2. Aðildarríkin skulu tryggja að fötluðu fólki sé ekki haldið í þrældómi eða ánauð og að því sé veitt
vernd, til jafns við aðra, gegn þvingunar- eða nauðungarvinnu. 28. gr.
Viðunandi lífskjör og félagsleg vernd.
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til viðunandi lífskjara því til handa,
m.a. viðunandi fæðis og klæða og fullnægjandi húsnæðis, og til sífellt batnandi lífskilyrða og skulu
gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika án
mismununar vegna fötlunar.
2. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til félagslegrar verndar og til þess að njóta þess réttar án
mismununar vegna fötlunar og skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að
þessi réttur verði að veruleika, m.a. ráðstafanir:
a) til þess að tryggja fötluðu fólki jafnan rétt til aðgangs að hreinu vatni og að tryggja aðgang að
viðeigandi þjónustu, tækjabúnaði og annarri aðstoð gegn viðráðanlegu gjaldi vegna þarfa sem
tengjast fötlun,
b) til þess að tryggja fötluðu fólki, einkum fötluðum konum og stúlkum og fötluðu eldra fólki, rétt til
þátttöku í áætlunum á sviði félagslegrar verndar og áætlunum um að draga úr fátækt,
c) til þess að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess, sem lifa í fátækt, aðgang að aðstoð frá hinu
opinbera til þess að mæta útgjöldum vegna fötlunar, þ.m.t. útgjöld vegna viðeigandi þjálfunar,
ráðgjafar, aðstoðar í fjármálum og hvíldarumönnunar,
d) til þess að tryggja fötluðu fólki aðgang að áætlunum um byggingu húsnæðis á vegum hins
opinbera,
e) til þess að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang að eftirlaunum og eftirlaunasjóðum.
29. gr.
Þátttaka í stjórnmálum og opinberu lífi.
Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum stjórnmálaleg réttindi og tækifæri til þess að njóta þeirra til
jafns við aðra og skulu jafnframt:
a) tryggja að fötluðu fólki sé gert kleift að taka virkan og fullan þátt í stjórnmálum og opinberu lífi til
jafns við aðra, með beinum hætti eða fyrir atbeina fulltrúa eftir frjálsu vali, þ.m.t. réttur og
tækifæri til þess að kjósa og vera kosinn, meðal annars með því:
i. að tryggja að kosningaaðferðir, kosningaaðstaða og kjörgögn séu við hæfi, aðgengileg og
auðskilin og auðnotuð,
ii. að vernda rétt fatlaðs fólks til þess að taka þátt í leynilegri atkvæðagreiðslu í kosningum og
þjóðaratkvæðagreiðslum án þvingana með hótunum og til þess að bjóða sig fram í kosningum,
að gegna embættum með virkum hætti og að sinna öllum opinberum störfum á öllum stigum
stjórnsýslu, jafnframt því að greiða fyrir notkun hjálpartækja og nýrrar tækni þar sem við á, iii. að fatlað fólk geti látið vilja sinn óþvingað í ljós sem kjósendur og að heimilað sé í þessu
skyni, þar sem nauðsyn krefur og að ósk þess, að það njóti aðstoðar einstaklinga að eigin vali
við að greiða atkvæði,
b) vinna ötullega að mótun umhverfis þar sem fatlað fólk getur tekið virkan og fullan þátt í opinberri
starfsemi, án mismununar og til jafns við aðra, og hvetja til þátttöku þess í opinberri starfsemi,
meðal annars:
i. þátttöku í starfsemi frjálsra félagasamtaka og samtaka, sem láta sig málefni almennings varða
og stjórnmálalíf viðkomandi lands, og í störfum og stjórn stjórnmálaflokka,
ii. því að mynda og gerast aðilar að samtökum fatlaðs fólks til þess að rödd þess heyrist á
alþjóðavettvangi, heima fyrir á landsvísu og innan landsvæða og sveitarfélaga.
30. gr.
Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi.
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til þess að taka þátt, til jafns við aðra, í menningarlífi og
skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk:
a) hafi aðgang að menningarefni í aðgengilegri framsetningu,
b) hafi aðgang að sjónvarpsdagskrám, kvikmyndum, leikhúsi og öðrum athöfnum á sviði menningar,
í aðgengilegri framsetningu,
c) hafi aðgang að stöðum þar sem flutningur menningarefnis eða þjónusta á sviði menningar fer
fram, t.d. leikhúsum, söfnum, kvikmyndahúsum, bókasöfnum og ferðamannastöðum og hafi, eftir
því sem við verður komið, aðgang að minnisvörðum og stöðum sem eru mikilvægir í
þjóðmenningarlegu tilliti.
2. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái tækifæri til að þroska og
nota sköpunargáfu sína og listræna og vitsmunalega getu, ekki einvörðungu í eigin þágu heldur
einnig í því skyni að auðga mannlíf í eigin samfélögum.
3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir, samkvæmt reglum þjóðaréttar, til þess að tryggja
að í lögum, sem vernda hugverkarétt, séu ekki ákvæði sem koma á ósanngjarnan hátt, eða með
einhverjum þeim hætti sem hefur mismunun í för með sér, í veg fyrir að fatlað fólk hafi aðgang að
menningarefni.
4. Fatlað fólk skal eiga rétt á, til jafns við aðra, að sérstök menningarleg samsemd þess og samsemd
með tilliti til tungumáls sé viðurkennd og njóti stuðnings, þ.m.t. táknmál og menning heyrnarlausra.
5. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir, í því skyni að gera fötluðu fólki kleift að taka til
jafns við aðra þátt í tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi: - 20 -
a) til þess að hvetja til og stuðla að þátttöku fatlaðs fólks, eins og frekast er unnt, í algengu
íþróttastarfi á öllum stigum,
b) til þess að tryggja fötluðu fólki tækifæri til þess að skipuleggja, þróa og taka þátt í íþrótta- og
tómstundastarfi fyrir fatlað fólk og örva, í þessu skyni og með sama hætti og gildir um aðra,
framboð á viðeigandi tilsögn, þjálfun og fé,
c) til þess að tryggja fötluðu fólki aðgang að stöðum þar sem íþrótta- og tómstundastarf fer fram og
að ferðamannastöðum,
d) til þess að tryggja fötluðum börnum aðgang, til jafns við önnur börn, að leikjum og tómstunda- og
frístunda- og íþróttastarfi, meðal annars innan skólakerfisins,
e) til þess að tryggja fötluðu fólki aðgang að þjónustu þeirra sem annast skipulagningu
tómstundastarfs, ferðamennsku og frístunda- og íþróttastarfs.
31. gr.
Hagtölur og gagnasöfnun.
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að safna viðeigandi upplýsingum, þ.m.t. hagtölur og
rannsóknargögn, sem gera þeim kleift að móta og framfylgja stefnu samningi þessum til
framkvæmdar. Söfnun og varðveisla slíkra upplýsinga:
a) skal vera í samræmi við lögmætar verndarráðstafanir, meðal annars löggjöf um gagnavernd, til
þess að tryggt sé að trúnaðarskylda sé virt og einkalíf fatlaðs fólks,
b) skal vera í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar viðmiðunarreglur um vernd mannréttinda og
mannfrelsis og siðareglur sem gilda um söfnun og notkun hagtalna.
2. Upplýsingar, sem er safnað samkvæmt þessari grein, skal sundurliða, eftir því sem við á, og nota
til þess að meta hvernig aðildarríkjunum miðar að því að efna skuldbindingar sínar samkvæmt
samningi þessum og til að greina og ryðja úr vegi þeim hindrunum sem fatlað fólk stendur frammi
fyrir þegar það hyggst nýta sér réttindi sín.
3. Aðildarríkin skulu ábyrgjast miðlun fyrrnefndra hagtalna og tryggja fötluðu fólki og öðrum
aðgang að þeim.
6. gr.
Fatlaðar konur.
1. Aðildarríkin viðurkenna að fatlaðar konur og stúlkur eru þolendur fjölþættrar mismununar og
skulu gera ráðstafanir til þess að tryggja að þær fái notið til fulls allra mannréttinda og mannfrelsis til
jafns við aðra.
2. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að konur fái notið sín til fulls, geti sótt
fram og hafi fullan frumkvæðisrétt, í því skyni að tryggt sé að þær geti nýtt sér og notið þeirra
mannréttinda og mannfrelsis sem sett eru fram í samningi þessum.
7. gr.
Fötluð börn.
1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið fullra
mannréttinda og mannfrelsis til jafns við önnur börn.
2. Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er
viðkomandi barni fyrir bestu.
3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um
öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja
miðað við aldur þeirra og þroska, til jafns við önnur, börn og veita þeim aðstoð, þar sem tekið er
eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs, til þess að sá réttur megi verða að veruleika. 25. gr.
Heilsa.
Aðildarríkin viðurkenna að fatlað fólk hafi rétt til þess að njóta góðrar heilsu að hæsta marki sem
unnt er án mismununar vegna fötlunar. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að
tryggja fötluðu fólki aðgang að heilbrigðisþjónustu sem tekur mið af kyni, m.a. heilsutengdri
endurhæfingu. Aðildarríkin skulu einkum:
a) sjá fötluðu fólki fyrir heilsugæslu og heilbrigðisáætlunum, sem eru ókeypis eða á viðráðanlegu
verði og eins að umfangi, gæðum og á sama stigi og gildir fyrir aðra einstaklinga, m.a. með tilliti
til kynlífs- og frjósemisheilbrigðis og að því er varðar samfélagsáætlanir á sviði lýðheilsu, - 16 -
b) bjóða fram þá heilbrigðisþjónustu sem fatlað fólk þarfnast, einkum vegna fötlunar sinnar, m.a. að
fötlun sé uppgötvuð snemma og að gripið sé inn í málið snemma, eftir því sem við á, og þjónustu
sem miðar að því að draga úr fötlun eins og framast er kostur og koma í veg fyrir frekari fötlun,
m.a. meðal barna og eldri einstaklinga,
c) bjóða fram fyrrnefnda heilbrigðisþjónustu eins nálægt samfélögum fólks og frekast er unnt, þ.m.t.
til sveita,
d) gera þá kröfu til fagfólks í heilbrigðisþjónustu að það annist fatlað fólk eins vel og aðra, m.a. á
grundvelli frjáls og upplýsts samþykkis, með því, auk annars, að auka vitund um mannréttindi,
meðfædda göfgi, sjálfræði og þarfir fatlaðs fólks með þjálfun fyrir starfsmenn, bæði innan
einkarekinnar og opinberrar heilsugæslu, og með útbreiðslu siðferðislegra viðmiðana meðal
þeirra,
e) leggja bann við mismunun gagnvart fötluðu fólki að því er varðar sjúkratryggingar og
líftryggingar, þar sem slíkar tryggingar, sem skulu boðnar fram á sanngjarnan og réttmætan hátt,
eru heimilar samkvæmt landslögum.
f) koma í veg fyrir að einstaklingum sé synjað um heilsugæslu eða heilbrigðisþjónustu eða um mat
og drykk þannig að um mismunun vegna fötlunar sé að ræða.
26. gr.
Hæfing og endurhæfing.
1. Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir, m.a. annars með tilstyrk
jafningjaaðstoðar, til þess að gera fötluðu fólki kleift að öðlast sem mest sjálfstæði, fulla líkamlega,
andlega og félagslega getu, ásamt starfsgetu, og að vera þátttakendur í lífinu á öllum sviðum án
aðgreiningar, ásamt því að viðhalda þessum gæðum. Til þess að svo megi verða skulu aðildarríkin
skipuleggja, efla og útvíkka þjónustu og áætlanagerð á sviði alhliða hæfingar og endurhæfingar,
einkum að því er varðar heilbrigði, atvinnu, menntun og félagsþjónustu, með þeim hætti að fyrrnefnd
þjónusta og áætlanir:
a) hefjist eins snemma og frekast er unnt og séu byggðar á þverfaglegu mati á þörfum og styrk hvers
einstaklings um sig,
b) stuðli að þátttöku í samfélaginu og þjóðfélaginu á öllum sviðum án aðgreiningar, séu valfrjálsar
og standi fötluðu fólki til boða sem næst samfélögum þess, einnig til sveita.
2. Aðildarríkin skulu stuðla að vexti og viðgangi grunnþjálfunar og stöðugrar þjálfunar fagmanna og
starfsmanna sem vinna við hæfingu og endurhæfingu.
3. Aðildarríkin skulu gera gangskör að því að hjálpartæki og -gögn, sem eru hönnuð fyrir fatlað fólk,
séu á boðstólum, þekking á þeim sé til staðar og að þau séu notuð í þágu hæfingar og endurhæfingar. 32. gr.
Alþjóðlegt samstarf.
1. Aðildarríkin viðurkenna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og að stuðlað verði að framgangi þess, til
stuðnings innlendri viðleitni til þess að tilgangur og markmið samnings þessa megi ná fram að ganga,
og munu gera viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir í þeim málum milli og meðal ríkja og, eftir því
sem við á, í samvinnu við hlutaðeigandi alþjóða- og svæðisstofnanir og borgaralegt samfélag,
einkum samtök fatlaðs fólks. Fyrrnefndar ráðstafanir gætu meðal annars náð yfir eftirfarandi: a) að tryggja að alþjóðlegt samstarf, þ.m.t. alþjóðlegar þróunaráætlanir, nái til fatlaðs fólks og sé því
aðgengilegt,
b) að efla og auka afkastagetu, m.a. með því að skiptast á og miðla með gagnkvæmum hætti
upplýsingum, reynslu, þjálfunaráætlunum og bestu starfsvenjum,
c) að greiða fyrir samvinnu á sviði rannsókna og auðvelda aðgengi að vísinda- og tækniþekkingu,
d) að láta í té, eftir því sem við á, tækni- og efnahagsaðstoð, m.a. með því að auðvelda aðgang að og
gagnkvæma miðlun aðgengilegrar og gagnlegrar tækni, og með yfirfærslu á tækni,
2. Ákvæði þessarar greinar hafa engin áhrif á þá skyldu sérhvers aðildarríkis að efna skuldbindingar
sínar samkvæmt samningi þessum.
33. gr.
Framkvæmd og eftirlit innanlands.
1. Aðildarríkin skulu tilnefna, í samræmi við stjórnskipulag sitt, eina miðstöð eða fleiri innan
stjórnsýslunnar vegna mála er varða framkvæmd samnings þessa og taka til tilhlýðilegrar
umfjöllunar hvort koma skuli á eða tiltaka samræmingarkerfi innan stjórnsýslunnar í því skyni að
greiða fyrir skyldum aðgerðum vegna framkvæmdar samningsins á ólíkum sviðum og ólíkum
stigum.
2. Aðildarríkin skulu, í samræmi við réttar- og stjórnkerfi hvers ríkis um sig, viðhalda, treysta, tiltaka
eða koma á rammaáætlun, m.a. einu eða fleiri sjálfstæðum kerfum, eftir því sem við á, í því skyni að
greiða fyrir, vernda og fylgjast með framkvæmd samnings þessa. Samningsaðilarnir skulu, þegar þeir
tiltaka slíkt kerfi eða koma því á, taka mið af þeim meginreglum sem gilda um stöðu og starfsemi
innlendra stofnana á sviði verndar og eflingar mannréttinda.
3. Borgaralegt samfélag, einkum fatlað fólk og samtök sem fara með mál þess, skal eiga hlut að og
taka fullan þátt í eftirlitsferlinu.
34. gr.
Nefnd um réttindi fatlaðs fólks.
1. Setja ber á stofn nefnd um réttindi fatlaðs fólks (hér á eftir nefnd „nefndin“) sem skal vinna þau
verk sem kveðið er á um hér að aftan.
2. Þegar samningur þessi öðlast gildi skulu tólf sérfræðingar skipa nefndina. Eftir að sextíu aðilar
hafa fullgilt samninginn eða gerst aðilar að honum skal fjölgað í nefndinni um sex nefndarmenn sem
þýðir að heildarfjöldi nefndarmanna verður átján. - 22 -
3. Nefndarmenn sitja í nefndinni á eigin forsendum sem einstaklingar og skulu hafa þroskaða
siðferðisvitund og viðurkennda menntun og hæfi og reynslu á því sviði sem samningur þessi fjallar
um. Óskað er eftir því að aðildarríkin taki eðlilegt tillit til ákvæða 3. mgr. 4. gr. samnings þessa þegar
þau tilnefna frambjóðendur sína.
4. Aðildarríkin kjósa nefndarmenn að teknu tilliti til jafnrar dreifingar milli heimshluta, þess að
fulltrúar komi frá ólíkum menningarþjóðfélögum og grunnréttarkerfum, til jafnrar þátttöku kynjanna
og þátttöku fatlaðra sérfræðinga.
5. Nefndarmenn skulu kjörnir í leynilegri atkvæðagreiðslu af lista einstaklinga, sem aðildarríkin
tilnefna úr hópi þegna sinna, þegar fundir þings aðildarríkjanna fara fram. Á þeim fundum, sem eru
ákvörðunarbærir eigi tveir þriðju aðildarríkjanna þar fulltrúa, skulu þeir einstaklingar sem eru kjörnir
til setu í nefndinni vera þeir sem hljóta flest atkvæði og hreinan meirihluta atkvæða fulltrúa
aðildarríkjanna sem eru viðstaddir og greiða atkvæði.
6. Halda ber fyrstu kosningu eigi síðar en sex mánuðum eftir þann dag þegar samningur þessi öðlast
gildi. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal senda aðildarríkjunum bréf, með eigi
skemmri fyrirvara en fjórum mánuðum fyrir þann dag þegar sérhver kosning skal fara fram, og óska
eftir tilnefningum þeirra innan tveggja mánaða.
Aðalframkvæmdastjórinn tekur því næst saman skrá í stafrófsröð um alla einstaklinga, sem þannig
eru tilnefndir, og gefur til kynna hvaða aðildarríki tilnefndi þá og sendir að svo búnu skrána þeim
ríkjum sem eru aðilar að samningi þessum.
7. Kjörtímabil nefndarmanna er fjögur ár. Heimilt er að endurkjósa þá einu sinni. Engu að síður skal
kjörtímabili sex þeirra nefndarmanna sem kosnir eru í fyrstu kosningu ljúka að tveimur árum liðnum;
strax að lokinni fyrstu kosningu skal fundarstjóri, á fundi þeim er um getur í 5. mgr. þessarar greinar,
velja nöfn fyrrnefndra sex nefndarmanna með hlutkesti.
8. Kjör hinna sex viðbótarnefndarmanna skal fara fram þegar reglubundnar kosningar fara fram í
samræmi við viðeigandi ákvæði þessarar greinar.
9. Falli nefndarmaður frá eða segi af sér eða lýsi því yfir að hann geti ekki, af einhverri annarri
ástæðu, gegnt skyldum sínum skal aðildarríkið, sem tilnefndi hann, skipa annan sérfræðing, sem
hefur menntun og hæfi og uppfyllir þær kröfur er um getur í viðeigandi ákvæðum þessarar greinar, til
þess að starfa í nefndinni út kjörtímabilið.
10. Nefndin setur sér starfsreglur.
11. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal útvega nauðsynlega starfsmenn og aðstöðu
til þess að nefndin geti sinnt störfum sínum með skilvirkum hætti samkvæmt samningi þessum og
boða til fyrsta fundar hennar.
12. Þeir sem sitja í nefndinni, sem er komið á fót samkvæmt samningi þessum, skulu, með
samþykki allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, þiggja laun úr sjóðum Sameinuðu þjóðanna
samkvæmt þeim skilmálum og skilyrðum sem allsherjarþingið kann að ákveða, að teknu tilliti til
mikilvægis þeirra ábyrgðarstarfa sem nefndin sinnir. 13. Nefndarmönnum ber réttur til aðstöðu, forréttinda og friðhelgi sérfræðinga sem reka erindi
Sameinuðu þjóðanna, eins og mælt er fyrir um í viðeigandi hlutum samningsins um réttindi og
friðhelgi Sameinuðu þjóðanna.
35. gr.
Skýrslugjöf aðildarríkjanna.
1. Sérhvert aðildarríki skal senda nefndinni, fyrir milligöngu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, ítarlega skýrslu um ráðstafanir, sem hafa verið gerðar í því skyni að efna skuldbindingar
þess samkvæmt samningi þessum, og um framfarir, sem hafa orðið á því sviði, innan tveggja ára frá
því að samningur þessi öðlast gildi gagnvart hlutaðeigandi aðildarríki.
2. Eftir það skulu aðildarríkin senda skýrslur sínar eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti og oftar fari
nefndin fram á það.
3. Nefndin skal fastsetja leiðbeiningar um efni skýrslnanna.
4. Aðildarríki, sem hefur sent nefndinni ítarlega frumskýrslu, þarf ekki að endurtaka áður veittar
upplýsingar í skýrslum sem á eftir fara. Óskað er eftir því, þegar aðildarríkin undirbúa skýrslur til
nefndarinnar, að þau geri það með opnum og gagnsæum hætti og taki eðlilegt tillit til ákvæðisins í 3.
mgr. 4. gr. samnings þessa.
5. Í skýrslunum er heimilt að geta um þá þætti og erfiðleika sem hafa áhrif á það hversu vel miðar að
efna skuldbindingar samkvæmt samningi þessum.
36. gr.
Umfjöllun um skýrslur.
1. Nefndin skal fjalla um sérhverja skýrslu og gera þær tillögur og leggja fram þau almennu tilmæli
sem hún telur við eiga og senda hlutaðeigandi aðildarríki. Aðildarríkið getur svarað með því að láta
nefndinni í té þær upplýsingar sem það kýs. Nefndin getur óskað eftir frekari upplýsingum frá
aðildarríkjunum sem varða framkvæmd samnings þessa.
2. Dragist verulega á langinn að aðildarríki sendi skýrslu sína getur nefndin tilkynnt hlutaðeigandi
aðildarríki um að nauðsynlegt sé að kanna framkvæmd samnings þessa í því aðildarríki, á grundvelli
áreiðanlegra upplýsinga sem nefndin hefur aðgang að, hafi viðkomandi skýrsla ekki verið send innan
þriggja mánaða frá tilkynningunni. Nefndin skal bjóða hlutaðeigandi aðildarríki að taka þátt í
fyrrnefndri könnun. Bregðist aðildarríkið við með því að senda viðkomandi skýrslu gilda ákvæði 1.
mgr. þessarar greinar.
3. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal gera öllum aðildarríkjunum kleift að nálgast
skýrslurnar. - 24 -
4. Aðildarríkin skulu gera almenningi í eigin löndum auðvelt um vik að nálgast skýrslur sínar og
greiða fyrir aðgangi að þeim tillögum og tilmælum sem varða þessar skýrslur.
5. Nefndin skal senda sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna, ásamt sjóðum og áætlunum á þeirra
vegum, og öðrum bærum stofnunum skýrslur frá aðildarríkjunum, eftir því sem hún telur við eiga, í
því skyni að taka fyrir beiðni um eða vísbendingu um þörf fyrir tæknilega ráðgjöf eða aðstoð, sem
þar kemur fram, ásamt athugasemdum nefndarinnar og tilmælum, ef um þau er að ræða, viðvíkjandi
þessum beiðnum eða vísbendingum.
37. gr.
Samvinna milli aðildarríkjanna og nefndarinnar.
1. Sérhvert aðildarríki skal vinna með nefndinni og aðstoða nefndarmenn við að uppfylla skyldur
sínar eftir því umboði sem þeim er veitt.
2. Nefndin skal, í samskiptum sínum við aðildarríkin, taka eðlilegt tillit til leiða og aðferða við að
auka getu innanlands til þess að framkvæma samning þennan, m.a. í gegnum alþjóðlegt samstarf.
38. gr.
Tengsl nefndarinnar við aðrar stofnanir.
Í því skyni að greiða fyrir árangursríkri framkvæmd samnings þessa og að stuðla að samvinnu þjóða í
milli á því sviði sem hann fjallar um:
a) skulu sérstofnanir Sameinuðu þjóðanna og aðrar stofnanir þeirra hafa rétt til þess að eiga fyrirsvar
þegar fjallað er um framkvæmd þeirra ákvæða samnings þessa sem falla undir þann málaflokk
sem þær sinna. Nefndin getur óskað eftir því við sérstofnanirnar og aðrar bærar stofnanir, eftir því
sem hún telur við hæfi, að þær láti í ljós sérfræðiálit um framkvæmd samningsins innan þeirra
sviða sem falla undir málaflokka hverrar um sig. Nefndin getur óskað eftir því við sérstofnanir og
aðrar bærar stofnanir að þær leggi fram skýrslur um framkvæmd samningsins innan þeirra sviða
sem falla undir starfsemi þeirra.
b) Þegar nefndin uppfyllir skyldur sínar eftir umboði sínu skal hún hafa samráð, eftir því sem við á,
við aðrar hlutaðeigandi stofnanir, sem er komið á fót samkvæmt alþjóðasamningum um
mannréttindi, í því skyni að tryggja samsvörun leiðbeininga, tillagna og almennra tilmæla hverrar
um sig viðvíkjandi skýrslugerð og að forðast tvíverknað og skörun í störfum þeirra.
39. gr.
Skýrsla nefndarinnar.
Nefndin skal gefa allsherjarþinginu og efnahags- og félagsmálaráðinu skýrslu um starfsemi sína og
getur lagt fram tillögur og almenn tilmæli byggð á könnun skýrslna og upplýsinga frá
aðildarríkjunum.
Slíkar tillögur og almenn tilmæli ber að fella inn í skýrslu nefndarinnar ásamt athugasemdum frá
aðildarríkjunum, ef um þau er að ræða. 40. gr.
Þing aðildarríkjanna.
1. Fulltrúar aðildarríkjanna skulu hittast reglulega á þingi aðildarríkjanna í því skyni að fjalla um öll
mál er varða framkvæmd samnings þessa.
2. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal kalla saman þing aðildarríkjanna eigi síðar en
sex mánuðum eftir að samningur þessi öðlast gildi. Aðalframkvæmdastjórinn boðar til funda annað
hvert ár eftir það eða eins oft og þing aðildarríkjanna ákveður.
41. gr.
Vörsluaðili.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal vera vörsluaðili samnings þessa.
42. gr.
Undirritun.
Samningur þessi skal liggja frammi til undirritunar af hálfu allra ríkja og svæðisstofnana um
samvinnu í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York frá 30. mars 2007 að telja.
43. gr.
Samþykki fyrir því að vera bundinn af samningi þessum.
Samningur þessi er með fyrirvara um fullgildingu undirritunarríkja og formlega staðfestingu
svæðisstofnana um samvinnu sem undirrita hann. Samningurinn skal liggja frammi til aðildar af
hálfu sérhvers ríkis eða svæðisstofnunar um samvinnu sem ekki hefur undirritað hann.
44. gr.
Svæðisstofnanir um samvinnu.
1. „Svæðisstofnun um samvinnu“ merkir stofnun sem fullvalda ríki á tilteknu svæði koma á fót og
hefur umboð, sem aðildarríki hennar veita henni, til að fara með málefni sem samningur þessi fjallar
um. Svæðisstofnanir um samvinnu skulu greina, í skjölum sínum um formlega staðfestingu eða aðild,
frá valdmörkum sínum með tilliti til mála sem samningur þessi fjallar um. - 26 -
Þær skulu síðar meir tilkynna vörsluaðila um hverja þá breytingu sem verða kann á umboði þeirra og
skiptir máli.
2. Vísanir til „aðildarríkja“ í samningi þessum eiga við fyrrnefndar stofnanir eins langt og valdsvið
þeirra nær.
3. Að því er varðar 1. mgr. 45. gr. og 2. og 3. mgr. 47. gr. samnings þessa skal eigi telja með skjöl
sem svæðisstofnun um samvinnu afhendir til vörslu.
4. Svæðisstofnanir um samvinnu geta, í málum sem eru á valdsviði þeirra, neytt atkvæðisréttar á
þingi aðildarríkja með sama fjölda atkvæða og fjöldi aðildarríkja þeirra, sem eru aðilar að samningi
þessum, segir til um. Slík stofnun skal ekki neyta atkvæðisréttar síns ef eitthvert aðildarríki hennar
neytir atkvæðisréttar síns og öfugt.
45. gr.
Gildistaka.
1. Samningur þessi öðlast gildi á þrítugasta degi eftir að tuttugasta skjalið um fullgildingu eða aðild
hefur verið afhent til vörslu.
2. Gagnvart sérhverju ríki eða svæðisstofnun um samvinnu, sem fullgildir samning þennan,
staðfestir hann formlega eða gerist aðili að honum eftir afhendingu tuttugasta skjalsins um slíka
athöfn til vörslu, skal samningurinn öðlast gildi á þrítugasta degi eftir að hlutaðeigandi ríki eða slík
stofnun hefur afhent viðkomandi skjal sitt til vörslu.
46. gr.
Fyrirvarar.
1. Óheimilt er að gera fyrirvara sem eru í ósamræmi við markmið og tilgang samnings þessa.
2. Heimilt er að draga fyrirvara til baka hvenær sem er.
47. gr.
Breytingar.
1. Sérhvert aðildarríki getur lagt fram breytingartillögu við samning þennan og sent
aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Aðalframkvæmdastjórinn skal senda aðildarríkjunum
allar breytingartillögur, ásamt beiðni um að sér verði tilkynnt hvort þau séu því meðmælt að haldið
verði þing aðildarríkja í því skyni að fjalla um þær og afgreiða. Komi í ljós, innan fjögurra mánaða
frá því að aðalframkvæmdastjórinn sendir fyrrnefndar tillögur, að minnst þriðjungur aðildarríkjanna
sé meðmæltur þinghaldi skal aðalframkvæmdastjórinn kalla þingið saman á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Aðalframkvæmdastjórinn skal senda allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sérhverja breytingartillögu,
sem er samþykkt með tveimur þriðju hluta atkvæða fulltrúa þeirra aðildarríkja sem eru viðstaddir og
greiða atkvæði, til samþykktar og í framhaldi af því öllum aðildarríkjum til staðfestingar.
2. Breyting, sem er tekin upp og samþykkt í samræmi við 1. mgr. þessarar greinar, öðlast gildi á
þrítugasta degi eftir að fjöldi skjala um staðfestingu, sem hafa verið afhent til vörslu, jafngildir fjölda
samningsríkja að tveimur þriðju þann dag þegar breytingin er samþykkt. Eftir það öðlast breytingin
gildi gagnvart hvaða aðildarríki sem er á þrítugasta degi eftir að það afhendir skjal sitt um
staðfestingu til vörslu. Breyting er aðeins bindandi fyrir þau aðildarríki sem hafa staðfest hana.
3. Breyting, sem er tekin upp og samþykkt í samræmi við 1. mgr. þessarar greinar og varðar 34., 38.,
39. og 40. gr. einvörðungu, skal, ákveði þing samningsaðila það einróma, öðlast gildi gagnvart öllum
aðildarríkjum á þrítugasta degi eftir að fjöldi skjala um staðfestingu, sem hafa verið afhent til vörslu,
jafngildir fjölda aðildarríkja að tveimur þriðju þann dag þegar breytingin er samþykkt.
48. gr.
Úrsögn.
Aðildarríki getur sagt sig frá samningi þessum með skriflegri tilkynningu til
aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Úrsögnin tekur gildi einu ári eftir þann dag þegar
aðalframkvæmdastjórinn veitir tilkynningunni viðtöku.
49. gr.
Aðgengilegt snið.
Texti samnings þessa skal liggja frammi á aðgengilegu sniði.
50. gr.
Gildir textar.
Textar samnings þessa á arabísku, ensku, frönsku, kínversku, rússnesku og spænsku eru jafngildir.
ÞESSU TIL STAÐFESTU hafa undirritaðir fulltrúar, sem til þess hafa fullt umboð ríkisstjórna
sinna, undirritað samning þennan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband